I´m still alive :)
Það er svo langt síðan síðast að ég þurfti alveg að pæla vel hvað aðgangsorðið á síðuna væri hehe.
Ritgerðin loksins búin og fékk bara mjög góða einkun og umsögn fyrir hana. Hrikalega sátt við það allt saman, útskrift 6.júní og planið er að hafa smá grillveislu svona ef ég verð ekki farin af stað 
4 vikur síðan ég hætti að vinna, bara búin að vera að reyna að slaka á skv. læknisráði, gengur ok, er allavega búin að ná blóðþrýstingnum niður. Bumban stækkar og stækkar og erfinginn alveg að hafa það voða kósý þarna inni.
Búið að redda flest öllu fyrir krílið og ég búin að þvo og strauja allt sem var keypt í London og það sem var fengið að láni líka. Voða fegin að vera búin að þessu öllu núna, enda komin tæpar 37 vikur. Búin að liggja soldið í laugunum í afslöppun og komin með ágætislit bara ...nokkuð sneddí
Svo er ég í bumbusundi líka og fer einu sinni í viku sirka í nudd sem er alveg að bjarga bakinu. Voða fínt að vera svona dekruð bara 
Annars er bara búið að vera nóg að gera við að gera ekki neitt hehe, skruppum á Akureyri um síðustu helgi. Voða fínt að komast aðeins úr bænum. Varð vitni að fyrstu skrefunum hans Snæbjörns systursonar Stefáns, voða gaman 
Blehh komið gott í bili, veit ekki hversu dugleg ég verð að skrifa hérna. Allt barnatengt fer alltaf beint inn á barnalandssíðuna. Ætla líka að færa myndaalbúmin á aukasíðu þar svona til að geta haft þau læst. Gerist allt þegar nennan hellist yfir mig haha.
Kv. Bumbupían

En það reddast allt saman. ég skal í þessa útskrift í júní svo lengi sem ég verði ekki á fæðingardeildinni !!!
Vona innilega að baby fái íþróttaálfsgenið frá honum og hans familí...því ekki er það mjög virkt í minni !!!
Það er greinilega allt eða ekkert á þessum bæ. Myndirnar ná alveg aftur að verslunarmannahelginni hehe.